untitled













Velkominn í jólasafnið mitt, hér eru nokkrar myndir sem ég hef safnað saman af netinu. Sumar myndir eru samt fengnar af láni af sumum síðum þar sem þú þarft að merkja með grafik frá, það eru merki með flestum myndunum sem þú getur notað til þess, farðu nú og gerðu síðuna þína flotta og jólalega, enn mundu að það er betra ef þú save myndirnar í þitt albúm.



Jólin og gjafir: Flestir eru sammála um að besta jólagjöfin sem þeir hafi fengið hafi verið þegar þeir gátu gefið af sér til þeirra sem minna máttu sín, glatt döpur hjörtu, lagt fátækum lið, beðið fyrir eða hjálpað veikum. Það er einmitt þetta sem jólin snúast um. Jólin eru ljós og kærleikur. Jólin eru besti tíminn til þess að gera góðverk, biðja fyrir náunganum og sjálfum sér, og hjálpa öllum þeim sem þess þurfa. Bænin er sterk allan ársins hring, en í kring um jól er hún samt sérstaklegea sterk vegna þess hvernig andrúmsloftið er, allir eru móttækilegur og farvegur bænarinnar er greiðfærari, vegna þess að almenningur er jákvæðari. Nýtum þessar aðstæður, látum okkur líða vel og gerum góðverk. Hjálpum til þar sem þörf er á, biðjum fyrir sjúkum og þeim sem eiga bágt, tökum utan um vini okkar, látum kærleikann flæða hindrunarlaust um brjóst okkar og framkvæmum það góða sem þar býr. Það þarf ekki alltaf að vera stórt, og jafnvel því minna sem okkur finnst það vera því áhrifaríkara er það.Góðar heimsóknir þar sem fólk gefur sér tíma til að stoppa og spjalla og síðast en ekki síst að hlusta er betir heldur en nokkur keypt gjöf. Þetta er það sem jólin snúast um kærleikur, að allir séu vinir og að við getum lagt öðrum lið. Láttu verða af því um þessi jól að gera eitthvað gott sem býr í brjósti þér og finndu jólin í hjarta þínu því þar eru jólin. J.J
















 


Report Content · · Web Hosting · Blog · Guestbooks · Message Forums · Mailing Lists
Easiest Website Builder ever! · Build your own toolbar · Free Talking Character · Email Marketing
powered by a free webtools company bravenet.com